Veftré Print page English

Fundur með kóreskum skipafélögum


Forseti situr kynningarfundi sem kóresk skipafélög og skipasmíðastöðvar, Daewoo (DSME) og Hyundai Glovis, héldu um margvísleg áform sem tengd eru breyttum aðstæðum á Norðurslóðum. Í máli forsvarsmanna DSME kom m.a. fram að þegar er unnið að byggingu allmargra sérstyrktra skipa sem siglt geta um hinar nýju siglingaleiðir á Norðurslóðum milli Asíu og Evrópu án þess að njóta liðsinnis ísbrjóta.