Veftré Print page English

Mekong svæðið


Forseti heimsækir Mekong svæðið í Víetnam og kynnir sér atvinnulíf og lífshætti bænda og sjómanna, fiskeldi, ávaxtarækt sem og búsetuskilyrði við síkin í nágrenni hins mikla fljóts. Ljóst er að loftslagsbreytingar og hækkun sjávarborðs mundu hafa mikil áhrif á náttúru þessa svæðis sem er meðal gjöfulustu landbúnaðarsvæða landsins. Þessi heimsókn var síðasti liður í dagskrá opinberrar heimsóknar forseta til Víetnams.