Veftré Print page English

Morgunverðarfundur með borgarstjóra


Forseti á morgunverðarfund með borgarstjóra Ho Chi Minh borgar Le Hoang Quan sem ítrekaði yfirlýsingar sínar frá fyrri fundi þeirra um samvinnu við Ísland og flutti sérstaka kveðju frá forseta Víetnams sem lýsti mikilli ánægju með heimsóknina. Víetnamar væntu mikils af samstarfi við Ísland, sérstaklega á sviði jarðhita, sjávarútvegs og tæknimenntunar. Í morguverðinum rakti borgarstjórinn einnig þátttöku sína í Víetnamstriðinu og lagði áherslu á að sigur hefði unnist í krafti baráttuvilja þjóðarinnar.