Veftré Print page English

Aðalritari Kommúnistaflokks Víetnams


Forseti á fund með aðalritara Kommúnistaflokks Víetnams í hátíðarbyggingu flokksins í Hanoi og var einkum rætt um langvarandi frelsisbaráttu víetnömsku þjóðarinnar og hvernig einhugur hennar ásamt víðtækum alþjóðlegum stuðningi hefði leitt til sigurs og tryggt sameiningu og sjálfstæði landsins. Einnig var fjallað um ýmis brýn verkefni hins alþjóðlega samfélags á sviði breytinga í orkunýtingu, baráttu gegn loftslagsbreytingum, verndun hafanna sem og að efnahagslegar framfarir nýttust öllum almenningi. Myndir