Veftré Print page English

Fundur með þingforseta Vietnams


Forseti á fund með forseta Þjóðþings Vietnams, Nguyen Sinh Hung, en fundurinn fór fram í nýrri byggingu þingsins. Á fundinum lagði þingforsetinn sérstaka áherslu á að efnahagsþróun nýttist einnig dreifðum byggðum og bændum vítt og breitt um landið. Í því sambandi lýsti forseti Íslands hvernig þróun jarðhita og hreinnar orku hefði nýst byggðum Íslands, jafnt sveitum sem sjávarbyggðum. Forseti þingsins lýsti áhuga á samstarfi við Alþingi Íslendinga og reifaði möguleika á gagnkvæmum heimsóknum þingmanna. Myndir