Veftré Print page English

Blaðamannafundur og undirritun samninga


Í kjölfar fundar forseta Íslands með forseta Víetnams greindu forsetarnir á blaðamannafundi frá helstu atriðum sem fram komu á fundi þeirra. Við upphaf blaðamannafundarins undirrituðu Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og viðskipta- og iðnaðarráðherra Víetnams samkomulag ríkjanna um samvinnu á sviði jarðhitanýtingar. Þá undirrituðu Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík og rektor Þjóðarháskóla Víetnams samkomulag um samvinnu háskólanna. Myndir.