Veftré Print page English

Móttökuathöfn


Opinber heimsókn forseta Íslands til Víetnam hófst með móttökuathöfn við forsetahöllina þar sem Truong Tan Sang forseti Víetnam og forsetafrú tóku á móti íslensku forsetahjónunum og sendinefndinni, en hana skipuðu m.a. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, embættismenn forsetaskrifstofu og utanríkisráðuneytis, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar, orkumálastjóri og rektor Háskólans í Reykjavík. Áður hafði forseti lagt blómsveig að minnismerki um þá sem létu lífið í frelsisbaráttu Víetnama og blómsveig við grafhýsi Ho Chi Minh. Eftir að þjóðsöngvar Íslands og Víetnams höfðu verið leiknir könnuðu forsetar landanna heiðursvörð. Mynd.