Fundur með krónprins Abu Dhabi
Forseti á fund með Hans Hátign Mohammed bin Zayed Al Nahyan, krónprins Abu Dhabi, um þróun Zayed orkuverðlaunanna, val á verðlaunahöfum sem tilkynnt verður við hátíðlega athöfn í janúar. Einnig var rætt um þróun samstarfs á Norðurslóðum, árangur Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle og mikilvægi þeirrar forystu sem Masdar í Abu Dhabi hefur haft a síðastliðnum árum í þróun hreinnar orku og eflingu hennar víða um heim.