Veftré Print page English

Uppbygging á Norðurslóðum


Forseti á fund í Abu Dhabi með Sultan Al Jaber ráðherra og stjórnarformanni Masdar og Scott Minerd stjórnanda bandaríska fjárfestingasjóðsins Guggenheim Partners um tillögugerð varðandi þróun uppbyggingar á Norðurslóðum þar sem fjárfestingar tækju mið af verndun umhverfis og hagsmunum íbúanna. Scott Minerd kynnti þá tillögugerð á allsherjarfundi þings Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle í Reykjavík fyrr í þessum mánuði og áform eru um að kynna hana frekar á næstu mánuðum,  m.a. með kynningum í Kóreu, Singapúr, og á alþjóða efnahagsþinginu, World Economic Forum, í Davos sem og í Québec í Kanada og á Grænlandi á næsta ári.