Veftré Print page English

Sendiherra Palestínu


Forseti á fund með sendiherra Palestínu gagnvart Íslandi sem senn lætur af störfum. Rætt var um tilraunir til samninga milli Palestínu og Ísraels og vaxandi spennu að undanförnu sem og sífellt flóknari stöðu í Miðausturlöndum. Mikilvægt væri að stuðla að árangursríkum friðarviðræðum sem komið gætu í veg fyrir frekari átök á svæðinu og tryggt íbúum Palestínu örugga framtíð í eigin höndum.