Viðtal við MSNBC
Forseti ræðir ásamt Scott Minerd stjórnanda Guggenheim Partners við bandarísku sjónvarpsstöðina MSNBC um mikilvægi Norðurslóða og um samstarf stjórnvalda og viðskiptalífs við að leggja grundvöll að ábyrgum fjárfestingum á Norðurslóðum þar sem tekið er tillit til umhverfisverndar og hagsmuna íbúanna. Einnig var rætt um árangurinn af Hringborði Norðurslóða - Arctic Circle.