Veftré Print page English

Sendinefnd Japans


Forseti á fund með sendiherra Japans á Íslandi, sendiherra landsins í málefnum Norðurslóða og forystumönnum vísindastofnana frá Japan sem sækja Hringborð Norðurslóða - Arctic Circle. Rætt var um frekari þátttöku Japans í fundum Hringborðsins, bæði Arctic Circle Forum sem haldið verður í Singapúr í næsta mánuði og þing Arctic Circle á Íslandi á næsta ári. Þá var einnig rætt um hina nýju stefnu Japans í málefnum Norðurslóða.