Veftré Print page English

Áætlun um uppbyggingu og fjármögnun innviða á Norðurslóðum


Forseti á fund með Scott Minerd, stjórnanda Guggenheim Partners, um áætlun sem hann hefur haft forystu um varðandi uppbyggingu innviða á Norðurslóðum en hún var kynnt á þingi Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle. Áætlunin verður áfram til umfjöllunar og þróunar á fundum Arctic Circle sem fyrirhugaðir eru bæði í Singapúr og Québec sem og á næsta þingi Hringborðs Norðurslóða. Áætlunin er byggð á regluverki um fjárfestingar á Norðurslóðum þar sem ríkulega er tekið tillit til umhverfisverndar og hagsmuna íbúanna.