Veftré Print page English

Sendinefnd Rússlands


Forseti á fund með sendinefnd Rússlands sem sækir Hringborð Norðurslóða - Arctic Circle þar sem rætt var um árangur af þátttöku rússneskra vísindamanna og embættismanna í þingum Arctic Circle og um mikilvægi kynningar sem fram fór á þinginu nú á regluverki og skipulagi sem Rússland er að festa í sessi varðandi öryggi og þjónustu við skip sem fara um nýjar siglingaleiðir um Norðurslóðir.