Veftré Print page English

Árnaðaróskir frá Frans páfa


Utanríkisráðherra Páfagarðs Parolin kardínáli sendi í lok vikunnar forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni bréf með árnaðaróskum frá hans heilagleika Frans páfa til Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle.


Í bréfinu er ítarlega fjallað um mikilvægi Norðurslóða fyrir lífríki jarðarinnar og framtíð mannkyns og áréttuð nauðsyn á víðtækri alþjóðlegri samvinnu á þessu sviði. Mikilvægt væri að hún byggði á vísindalegri þekkingu og hefði ávallt umhverfisvernd og heill íbúa norðursins að leiðarljósi.

 

Þá eru í bréfinu ítarlegar tilvísanir í stefnuyfirlýsingu Frans páfa sem birtist í umburðarbréfi hans Laudato Si’ þar sem ítarlega er fjallað um mikilvægi baráttunnar gegn loftslagsbreytingum.

 

Í niðurlagi bréfsins til forseta Íslands segir meðal annars að andrúmsloftið sé sameign alls mannkyns og ef núverandi breytingar haldi áfram þá verði á þessari öld risavaxin umskipti á loftslaginu ásamt tortímingu vistkerfa með alvarlegum afleiðingum fyrir alla íbúa jarðar. Þótt maðurinn valdi oft skaða geti hann líka látið gott af sér leiða og hafið nýja vegferð. Þing Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle skapi mikilvæg tækifæri til að efla samstöðu um breytingar á neysluháttum, framleiðslu og lífsstíl.

 

Jafnframt árnaðaróskum frá hans heilagleika Frans páfa áréttar Páfagarður aukið gildi Hringborðsins í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar í París í desember, COP21.Á allsherjarfundi Hringborðs Norðurslóða í morgun greindi forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson frá efni efni þessa bréfs Páfagarðs og árnaðaróskum hans heilagleika.


18. október 2015