Veftré Print page English

Forsætisráðherra Grænlands


Forseti á fund með forsætisráðherra Grænlands Kim Kielsen um Arctic Circle Forum sem áformað er að halda á Grænlandi í maí á næsta ári sem og margvíslega þætti í vaxandi samvinnu Íslands og Grænlands, m.a. með tilliti til ferðaþjónustu, samgangna, heilbrigðismála og nýtingu sjávarauðlinda. Þá var einnig rætt um mikilvægi þess að fjalla um heilbrigðisvandamál á Norðurslóðum og nauðsyn þess að veita ungu fólki aðstöðu til víðtækrar verkþjálfunar og náms.