Veftré Print page English

Sendinefnd Bandaríkjanna


Forseti á fund með sendinefnd frá Bandaríkjunum sem sækir Hringborð Norðurslóða - Arctic Circle en hana skipa fulltrúar frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, Hvíta húsinu, öldungadeild Bandaríkjaþings og fleiri aðilum í stjórnkerfi Bandaríkjanna. Rætt var um frekari þátttöku Bandaríkjanna í þingi og ráðstefnum Arctic Circle, m.a. til að kynna áherslur og stefnu Bandaríkjanna í formennskutíð þeirra í Norðurskautsráðinu.