Veftré Print page English

Frakklandsforseti við Sólheimajökul


Forseti tekur á móti forseta Frakklands François Hollande sem kemur í opinbera heimsókn til Íslands og flytur stefnuræðu á Hringborði Norðurslóða - Arctic Circle. Forsetarnir héldu síðan ásamt fylgdarliði Frakklandsforseta að rótum Sólheimajökuls þar sem gengið var yfir það svæði þar sem jökullinn hefur hopað á undanförnum áratugum og skoðuð áhrif loftslagsbreytinga á bráðnun jökulsins. Í samræðum við fjölda franska fjölmiðlamanna, sem voru með í för, útskýrði forseti Frakklands tengsl jökulsins og heimsóknarinnar til Íslands við undirbúning loftslagsráðstefnunanr í París.