Veftré Print page English

Hafsvæði Norðurslóða


Forseti flytur ræðu á málþingi um hafsvæði Norðurslóða, Arctic High Seas Forum, sem haldið er í Háskólanum í Reykjavík í aðdraganda Hringborðs Norðurslóða - Arctic Circle. Málþingið sækja sérfræðingar frá ýmsum löndum í hafrétti og regluverki um nýtingu hafsvæða. Þá munu sendiherrar ýmissa ríkja á Norðurslóðum sitja fyrir svörum. Í ræðunni áréttaði forseti nauðsyn rannsókna og fræðilegrar umræðu um hafsvæðin á Norðurslóðum, einkum í ljósi þess hve skammt er síðan aðgangur mannkyns að þessum svæðum opnaðist á þann hátt að m.a. ríki í fjarlægum heimsálfum gætu nýtt þau til flutninga og annarrar starfsemi.