Veftré Print page English

Sendiherra Víetnams


Forseti á fund með nýjum sendiherra Víetnams á Íslandi hr. Nguyen Truong Thanh sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um væntanlega opinbera heimsókn forseta til Víetnams en allmörg ár eru síðan þáverandi forseti landsins bauð forseta Íslands að koma í opinbera heimsókn. Megináhersla heimsóknarinnar verður á samvinnu á sviði sjávarútvegs og nýtingar auðlinda hafsins sem og samvinnu við að efla hlutdeild grænnar orku í ljósi þeirrar reynslu og tækniþekkingar sem Íslendingar hafa aflað sér. Einnig var rætt um árangur Víetnams á undanförnum árum á sviði efnahagslífs og tækniþróunar. 

 

vietnam2015