Veftré Print page English

Sendiherra Katar


Forseti á fund með nýjum sendiherra Katar, hr. Yousef Ali Al Khater sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu landanna, m.a. á grundvelli opinberrar heimsóknar forseta fyrir nokkrum árum til Katar, einkum með tilliti til nýtingar hreinnar orku víða um heim og samstöðu smárra ríkja á alþjóðlegum vettvangi. Þá var einnig rætt um þróun mála í Mið-Austurlöndum, vaxandi átök og erfiðleika sem og baráttu gegn hernaðarmætti öfgaafla.

 

2015_10_01_Katar