Veftré Print page English

Framkvæmdir og fjárfestingar á Norðurslóðum. Umhverfisreglur


Forseti á fund í New York með Scott Minerd og öðrum stjórnendum Guggenheim Partners sem unnið hafa að regluverki um fjárfestingar og framkvæmdir á Norðurslóðum þar sem tekið er mið af umhverfisvernd og lífsháttum íbúa. Jafnframt hefur vinnan beinst að uppbyggingu víðtæks samstarfs um framkvæmdir og fjárfestingar í þessum heimshluta og fjármögnun þeirra. Hugmyndirnar hafa verið þróaðar innan vébanda Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, og verða kynntar á þingi þess í Reykjavík.