Veftré Print page English

Samræðuhelgi Charlie Rose


Forseti tekur þátt í alþjóðlegu málþingi, Weekend with Charlie Rose, sem einn helsti þáttastjórnandi í bandarísku sjónvarpi, Charlie Rose efnir til í Aspen. Þingið er sótt af forystufólki á vettvangi alþjóðamála, sérfræðingum, vísindamönnum, frumkvöðlum og stjórnendum alþjóðastofnana og fyrirtækja. Á dagskrá málþingsins eru ýmis brýn viðfangsefni á sviði alþjóðamála og hófst það í gærkvöldi fimmtudaginn 24. september og lýkur síðdegis á morgun laugardag.