Veftré Print page English

Sendiherra Albaníu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Albaníu á Íslandi, hr. Ilir Abdiu, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samvinnu landanna á sviði orkumála, einkum varðandi virkjun vatnsafls í Albaníu en Landsvirkjun hefur tekið þátt í þarlendum verkefnum. Einnig var rætt um vanda flóttamanna í Evrópu og reynslu Albaníu af að taka á móti fjölda flóttamanna frá nágrannalöndum. Einnig var fjallað um hægfara aðlögun Albaníu að reglum Evrópusambandsins.

 

albania2015