Veftré Print page English

Sendiherra Tansaníu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Tansaníu á Íslandi, frú Dora Msechu, sem afhenti trúnaðarbréf á Bessastöðum. Rætt var um áhuga á vaxandi nýtingu jarðhita í Tansaníu, einkum í ljósi þróunar í ýmsum löndum Austur-Afríu. Þjálfun í Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna sem og í Sjávarútvegsskólanum gæti gagnast Tansaníu á margvíslegan hátt enda býr landið í senn að möguleikum í nýtingu jarðhita og sjávarauðlinda.

 

Tansania2015