Veftré Print page English

Sendiherra Þýskalands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Þýskalands á Íslandi Herbert Ludwig Beck sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um trausta samvinnu landanna og aukinn áhuga stjórnvalda í Þýskalandi á málefnum Norðurslóða en sérstök kynning á stefnu Þýskalands í þessum efnum mun fara fram á þingi Arctic Circle í Reykjavík í næsta mánuði. Þá var einnig fjallað um samstarf íslenskra aðila og Bremenhafnar um athugun á hugsanlegri höfn við Finnafjörð og möguleika á samstarfi á sviði jarðhitanýtingar víða í Evrópu. Einnig var rætt um mikilvægi beinna samskipta Íslands og Þýskalands sem og víðtæk tengsl landanna á sviði menningar og lista. 

 

M2