Veftré Print page English

Sendiherra Víetnams


Forseti á fund með sendiherra Víetnams á Íslandi Lai Ngoc Doan, sem senn lætur af störfum, um væntanlega opinbera heimsókn forseta til Víetnams og aukið samstarf landanna á sviði endurnýjanlegrar orku og ábyrgrar nýtingar sjávarauðlinda. Einnig var fjallað um farsæl áhrif víetnamska samfélagsins á Íslandi á íslenskt þjóðfélag en sendiherrann hafði í gær ásamt fjölskyldu sinni tekið þátt í samfagnaði Víetnama á Íslandi.

 

Sendiherra Víetnams ásamt eiginkonu sinni og dóttur á Bessastöðum.