Veftré Print page English

Institute of the North


Forseti á fund með Nils Andreassen forstöðumanni Institute of the North í Alaska en rannsóknarstofnunin hefur í áratugi haft forystu um samræður, stefnumótun og rannsóknir á Norðurslóðum. Hún var á sínum tíma sett á laggirnar af Walter J. Hickel fyrrum ríkisstjóra Alaska og hefur lengi verið í fararbroddi á þessu sviði. Stofnunin skipulagði meðal annars sérstaka ráðstefnu um orkumál á Norðurslóðum sem haldin var á Íslandi fyrir tveimur árum.