Veftré Print page English

Miðtaugakerfið. Alþjóðlegt átak


Forseti á fund með Auði Guðjónsdóttir, Guðlaugi Þór Þórðarsyni alþingismanni og dr. Ingimar Einarssyni fv. skrifstofustjóra um alþjóðlegt átak til að efla samstarf um rannsóknir á miðtaugakerfinu í þágu lækninga á margvíslegum sjúkdómum og áföllum vegna slysa. Sérstaklega hefur verið unnið að átakinu á undanförnum mánuðum og á fundinum var rætt um margvíslegar leiðir til að efla framhald þess á komandi misserum og árum.