Veftré Print page English

Sendiherra Rússlands


Forseti á fund með sendiherra Rússlands á Íslandi Anton Vasiliev um stöðuna í viðskiptum landanna og mikilvægi þess að tryggja framhald farsælla viðskipta sem í áratugi hafi verið báðum þjóðunum til hagsbóta; jafnvel skipt sköpum á örlagatímum í landhelgisbaráttu Íslendinga. Jafnframt sé virtur réttur ríkja til að taka afstöðu til einstakra deilna og átaka á alþjóðavettvangi með tilliti til alþjóðalaga, aðildar að bandalögum og viðhorfa grannþjóða. Á fundinum var og rætt um ýmsar leiðir sem gætu skref fyrir skref leitt til lausnar í ljósi þess að í báðum löndunum væri ríkur vilji til að varðveita langvarandi og gagnkvæma viðskiptahagsmuni þrátt fyrir tímabundinn ágreining um önnur mál. Söguleg átök á tímum kalda stríðsins, aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningur við Bandaríkin hefðu ekki komið í veg fyrir að Íslendingar og Rússar kappkostuðu að varðveita í áratugi hin traustu viðskiptatengsl landanna.