Sendiherra Indlands
Forseti á fund með sendiherra Indlands, Ashok Das, sem nú lætur af störfum. Rætt var um vaxandi samvinnu landanna, aðild Indlands að Norðurskautsráðinu, þjálfun jöklafræðinga á Íslandi, vaxandi áhuga á viðskiptum og mikilvægi þeirra lýðræðishefða sem einkenna stjórnarfar í báðum löndunum.