Sendiherra Kína
Forseti á fund með sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Weidong, um þátttöku kínverskra stjórnvalda í Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, en þing þess verður haldið í Reykjavík í október. Forseti Frakklands, Francois Hollande, hefur þegar tilkynnt þátttöku í þingi Arctic Circle og stjórnvöld í fjölmörgum öðrum löndum vinna nú að undirbúningi framlags þeirra til þingsins.