Veftré Print page English

Hringborð Norðurslóða


Forseti á fund með starfsmönnum Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, um undirbúning þingsins sem haldið verður í Reykjavík í október og ráðstefnanna sem haldnar verða í Alaska og Singapúr í ágúst og nóvember. Einkum var rætt um hinn mikla fjölda málstofa sem vísindastofnanir, umhverfissamtök, stjórnvöld og aðrir aðilar hafa gert tillögur um á undanförnum mánuðum en alls hafa borist um 90 slíkar tillögur um málstofur á þinginu í Reykjavík í október.