Veftré Print page English

Íslensk-kanadíska viðskiptaráðið


Forseti flytur ræðu á aðalfundi Íslensk-kanadíska viðskiptaráðsins sem haldinn er í Toronto. Í ræðunni fjallaði forseti einkum um vaxandi mikilvægi viðskipta milli landanna, einkum í ljósi þróunar Norðurslóða. Stofnun Efnahagsráðs Norðurslóða í nýliðinni formennskutíð Kanada í Norðurskautsráðinu væri vitnisburður um þessa þróun sem og áhugi forysturíkja í efnahagslífi Evrópu og Asíu á þátttöku í samstarfi Norðurskautsríkjanna. Nýr grundvöllur hefði á þennan hátt verið lagður að þróun viðskipta Íslands og Kanada á komandi árum og áratugum.