Ríkisarfi Lúxemborgar
Forseti býður ríkisarfa Lúxemborgar Guillaume prins og Stéphanie prinsessu til kvöldverðar á Bessastöðum. Guillaume sækir Smáþjóðaleikana sem haldnir eru í Reykjavík. Rætt var um margvíslegt samstarf Íslands og Lúxemborgar og stöðu smærri ríkja í Evrópu.