Veftré Print page English

Listahátíð. Móttaka


Forseti tekur á móti stjórnendum og aðstandendum Listahátíðar sem og íslenskum og erlendum listamönnum sem taka þátt í hátíðinni. Í ávarpi fagnaði forseti fjölbreytileika hátíðarinnar og hvernig hún væri nú tengd sögulegum tímamótum í baráttu kvenna. Jafnframt væri hin sterka alþjóðlega vídd hátíðarinnar mikilvæg sem og sú nýsköpun sem jafnan setur svip á hana.