Veftré Print page English

Albert II prins


Forseti býður furstanum af Mónakó, Albert II, til hádegisverðar á Bessastöðum þar sem rætt var um mikilvægi íþrótta í samstarfi þjóða, samvinnu Íslands og Mónakós og þróun mála á Norðurslóðum en furstinn er einn af stofnendum Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, og situr í heiðursráði þess. Hann hefur látið baráttuna gegn loftslagsbreytingum og umhverfismál mjög til sín taka á undanförnum árum.