Veftré Print page English

Félagslegar framfarir


Forseti flytur ávarp á málþingi um mælingar á félagslegum framförum, Social Progress Index, sem haldið er í höfuðstöðvum Arion banka. Þar voru kynntar mælingar á margvíslegum þáttum félagslegra framfara í fjölmörgum löndum heims og staða Íslands í því samhengi. Í ávarpi sínu áréttaði forseti að slíkar mælingar gætu breikkað umræðuna um velferð þjóða, framfarir og hvernig árangur í efnahagsmálum væri nýttur í þágu velferðar, heilbrigðis og félagslegs öryggis. Mikilvægt væri að þjóðin gerði sér grein fyrir hve vel hefði tekist á mörgum sviðum, jafnhliða því að vakin væri athygli á þörfinni á sérstökum aðgerðum.