Auðlindagarður
Forseti flytur ávarp í upphafi ráðstefnu um Auðlindagarð sem myndast hefur í kringum jarðhitafyrirtækin á Reykjanesi, þróun hans og tækifæri til víðtækara samstarfs, bæði innlendra aðila og erlendra. Í ávarpinu áréttaði forseti hve ríkur þáttur nýting jarðhitans væri orðin í ferðaþjónustu á Íslandi og í kynningu á hreinni orku, hvatti jafnframt til þess að leitað væri samstarfs við háskóla og rannsóknarstofnanir í þróun Auðlindagarðsins.