Sendiherra Bretlands
Forseti á fund með sendiherra Bretlands á Íslandi, Stuart Gill, um þátttöku Breta í Hringborði Norðurslóða, Arctic Circle, bæði í fyrra og á þinginu sem haldið verður í október á þessu ári, stefnumótun breskra stjórnvalda í málefnum Norðurslóða, skýrslu Lávarðadeildarinnar sem og athuganir á kostum þess að flytja rafmagn um sæstreng milli Íslands og Bretlands.