Veftré Print page English

Noregskonungur


Forseti tekur á móti Haraldi Noregskonungi sem kemur í stutta heimsókn til Íslands á leið sinni til Bandaríkjanna. Forseti sýndi konungi víkingaskipið Íslending sem varðveitt er í safninu í Reykjanesbæ og fræddi Gunnar Marel Eggertsson, sem smíðaði skipið og stjórnaði siglingu þess árið 2000, konung um skipið og ferðina sem farin var frá Íslandi til Grænlands, Kanada og Bandaríkjanna fyrir fimmtán árum. Myndir (ljósmyndari: Oddgeir Karlsson).