Veftré Print page English

Vináttufélag Japans og Íslands


Forseti tekur á móti sendinefnd frá Vináttufélagi Japans og Íslands en hún heimsækir Ísland í tengslum við áfanga í vináttusambandi landanna. Rætt var um vaxandi áhuga Japana á Íslandi, náttúru og hreinni orku sem og um rannsóknir á eldfjöllum og öðrum öflum náttúrunnar. Vináttufélagið hefur verið öflugur vettvangur til að styrkja sess Íslands í Japan og hafa fjölmargir forystumenn þess unnið að þessum tengslum í áraraðir. Mynd