Efling skátastarfs í Evrópu
Forseti tekur þátt í sérstakri athöfn Friends of Scouting in Europe sem haldin er í framhaldi af setningu norræns skátaþings en samtökin vinna að eflingu skátastarfs í Mið- og Austur Evrópu með einstaklingsbundnum framlögum frá skátum í öðrum Evrópulöndum. Við athöfnina afhenti forseti skírteini nýjum þátttakendum í þessu samstarfi, bæði frá Íslandi og öðrum Norðurlöndum.