Sendiherra Laos
Forseti á fund með nýjum sendiherra Laos, hr. Sayakane Sisouvong, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um glímu Laos við afleiðingar langvarandi átaka og styrjalda í landinu og nauðsyn efnahagslegrar og félagslegrar þróunar; sendiherrann lýsti sérstökum áhuga á að kynna sér reynslu Íslendinga í nýtingu náttúruauðlinda og skipulagningu ferðaþjónustu.