Veftré Print page English

Sendiherra Gana


Forseti á fund með nýjum sendiherra Gana fr. Edith Hazel, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um áhuga stjórnvalda í Gana á að kynna sér reynslu Íslendinga í sjávarútvegi og skipulag veiða og vinnslu en stjórnvöld í landinu leggja nú vaxandi áherslu á þróun sjávarútvegs, m.a. í krafti sérstaks sjávarútvegsráðuneytis sem þar hefur verið stofnað.

 

Gana_2015