Sendiherra Króatíu
Forseti á fund með nýjum sendiherra Króatíu, hr. Frane Krnic, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um stöðu smárra og meðalstórra ríkja í Evrópu, þróun mála á Balkanskaga og hættu á frekari átökum á komandi árum, sem og nauðsyn þess að ríki Evrópu stuðli að farsælli þróun efnahagslífs, sérstaklega hinna smærri ríjka á svæðinu.