Veftré Print page English

Rússneskir þingmenn


Forseti ræðir við hóp rússneskra þingmanna sem sækja þingmannafund Hinnar norðlægu víddar sem haldinn er í Reykjavík í boði Alþingis. Rætt var um fylki og svæði í norðurhluta Rússlands, vandamál þeirra og viðfangsefni sem og þátttöku fulltrúa þeirra í alþjóðlegri umræðu um Norðurslóðir en íbúarnir skynja betur en aðrir þau vandamál sem við er að glíma á Norðurslóðum. Þá var einnig fjallað um mikilvægi þátttöku þingmanna og kjörinna fulltrúa í stefnumótun á Norðurslóðum.