Evrópuráðherra Þýskalands
Forseti á fund með Evrópuráðherra Þýskalands Michael Roth sem heimsækir Ísland. Rætt var um margvísleg og langvarandi tengsl Íslands og Þýskalands, samvinnu á sviði menningar og viðskipta, sem og aukið mikilvægi Norðurslóða en Þýskaland mun kynna stefnu og áherslur sínar í málefnum Norðurslóða á þingi Arctic Circle í Reykjavík í október. Þá var rætt um nýtingu jarðhita víða í Evrópu og tengsl Íslands við Evrópusambandið, lærdómana af viðræðum um aðild sem og stöðu málsins um þessar mundir og á næstu árum. Einnig var rætt um árangur af opinberri heimsókn forseta til Þýskalands árið 2013 og boð til forseta Þýskalands Joachim Gauck um að heimsækja Ísland.