Afmæli Hjálpræðishersins
Forseti sækir hátíðarsamkomu í tilefni af 120 ára afmæli Hjálpræðishersins á Íslandi. Í ávarpi þakkaði forseti Hjálpræðishernum fyrir framlag hans til íslensks þjóðfélags, sérstaklega þjónustu við þá sem glíma við mikla erfiðleika og eru á vissan hátt utangarðs í íslensku samfélagi. Jafnframt rifjaði forseti upp minningar frá æskuárum sínum á Ísafirði þegar Hjálpræðisherinn var virkur þátttakandi í bæjarfélaginu eins og hann hefur verið víða um land.