Veftré Print page English

Sendiherra Rússlands


Forseti á fund með sendiherra Rússlands Anton Vasiliev um samstarf á Norðurslóðum, m.a. vegna þingmannafundar Hinnar norðlægu víddar sem haldinn verður í Reykjavík í næstu viku í boði Alþingis og þings Hringborðs Norðurslóða sem haldið verður í Reykjavík í haust. Þá var fjallað um aðra þætti í samstarfi Íslands og Rússlands, m.a. þróun samræðu um réttarríkið og þrígreiningu ríkisvaldsins í framhaldi af heimsókn fulltrúa Rússneska lögmannafélagsins og réttarstofnana til Íslands fyrir nokkrum árum.